sunnudagur, 27. október 2013

Hnetusmjörs smákökur Ala Karen Lind

Nammidagur!!
Svindl dagurinn er kominn!
Mér finnst alveg ofboðslega gaman að baka og elda eitthvað gott og hefur mér yfirleitt fundist það erfiðast í niðurskurðinum að geta ekki bakað alltaf þegar að ég vill. EN í dag skellti ég í eina low fat hnetusmjörs smákökur sem eru aðeins 25 kaloríur hver kaka!



Ef þetta er ekki fullkomnun á köldum sunnudags morgni þá veit ég ekki hvað! En hér er uppskriftin

5msk kókoshveiti
1 og hálf msk sukrin
1x tsk kakó
1/8 tsk lyftiduft
Pínu salt (má sleppa)
4 msk hnetusmjör
5 msk möndlumjólk
45 gr sykurlaust súkkulaði

Öllu blandað saman með gafli og súkkulaði síðast bætt við.
Ég myndi helst vilja borða deigið beint uppúr skálinni það er svo gott  yummy yummy!
En Mér finnst kökurnar líka koma best út þegar deigið er frekar blautt. Svo er sett í sirka 10-12 klatta á bökunarpappír og bakað
150°c í 12-15 mínútur



Njótið svo með vænum kaffibolla 
Kósý kveðja Karen Lind

fimmtudagur, 24. október 2013

Stríðsmaður með skottið milli lappanna!

Mig hefur alltaf langað til þess að vera góð í spinning og öllum þessum hópa þrek tímum sem að eru í gangi!

 


Því miður er rauninn bara ekki sú. Á nokkra mánaða fresti fæ ég þá dellu í mig að mæta í spinning tíma. Mér líður eins og stríðsmanni á vígvellinum þegar að ég mæti á svæðið, alveg grjóthörð og ætla að sigra heiminn. Stríðsmaðurinn ég fór í hádegis HIIT spinning í dag og mætti gallvösk á svæðið og tilbúin í slaginn.
Eftir sirka 7 mínútur var ég komin með blóðbragð í munninn! Eftir kannski 15-20 mínútur var ég sterklega farin að íhuga að yfirgefa sríðsvöllinn en leit þá í kringum mig og sá allar húsmæður og feður og meira að segja 1 stykki örugglega Ömmu og Afa í hrikalegum anda alveg á miljón og blésu ekki úr nös!


Svo að ég hélt áfram í horninu mínu vonandi að þessir jálkar færu ekki að horfa á ungu dömuna sem er nú margfaldur meistari í fitness vera að kafna í horninu.
En mikið ofboðslega verður maður alltaf stoltur af sér þegar maður gengur út og kláraði tímann!.... Verð nú að viðurkenna það að ég er með áreynslu astma svona til þess að halda smá virðingu eftir :P

En djöfull eiga margir hrós skilið fyrir að vera algjör villidýr í þessum tímum! Ég dáist af spinnurum og lít upp til þeirra
J
Skemmtilegur tími í dag og alltaf gaman að gera eitthvað krefjandi
kveðja Anti spinnarinn!

miðvikudagur, 23. október 2013

yfirferð yfir farin tíma

Jæja þá er dagskráin fyrir Bikarmót IFBB komin upp
Það er komin spenna í liðið enda 25-26 dagar í setta daga og maður er farin að sjá formið á liðinu umbreytast svo um munar. Mér sjálfri þykir alltaf lokaspretturinn lang skemmilegastur þar sem manni finnst maður sjá mesta muninn og frammfarirnar hjá manni sjálfum. Hver kannast ekki við það hvort sem að einstaklingur sé í megrun eða niðurskurði að finnast maður vera staðnaður og vatnaður! Og ekkert að ganga! En síðustu 2-3 vikurnar eru skoh að gefa!

Ég er búin að vera gífurlega vötnuð eftir syndina góðu sem að ég tók mér eftir Arnoldinn. Enda voru þar á ferð ýmist gúmmelaði eins og Ben&Jerrys, súkkulaði og ristað brauð (elska ristað brauð og var að fá mér 2x sneiðar!). Það voru nú bara 3-4 dagar en svo var það hardcore rútínan aftur. Finnst samt eins og ég sé fyrst núna í þessari viku að ná vökvanum af mér aftur :P
Þetta er lang erfiðasti tíminn finnst mér. Þar sem maður er búin að sjá hvernig formið manns er og búin að „prufu keyra“ það á móti og maður er faktískt tilbúin nema hvað að maður verður að bíða! Og viðhalda og lagfæra kannski svona nokkra punkta en þetta er erfitt.
En núna er líka kveiknað á keppnis skrímslinu! Mig langar að taka þátt á fleiri mótum helgi eftir helgi! Mig dreymir um mótin sem ég er búin að fresta og hef ákveðið að fara ekki á. EN þau verða að bíða betri tíma. Líkaminn er orðinn þreyttur og mig vantar mína hvíld.
Nú er ég búin að keppa á 7 mótum síðan páskana 2012 og er 8. Í nóv. Á þessum mótum hef er 3x verið 1.sæti 4sæti á Loaded cup, 13.sæti AcE 2012 og 12.sæti HM 2013 og svo loksins 2.sæti á Ace 2013.
Enda er þreytan farin að segja til sín. Líkaminn er farinn að fara hægar niður og tilfinningin um stöðnun er mun sterkari. Svo að það verður tekin smá pása eftir Bikarmótið J
Hér eru myndir frá mótunum sem ég hef tekið þátt á í réttri röð og má sjá muninn á forminu hverju sinni 











 Annars er bara tilhlökkun í gangi hér!